PERSÓNULEG GISTIUMSJÓN

Traustar tekjur
Minna umstang

Njóttu lífsins á meðan við sjáum um daglegt utanumhald.

Umsjón með skammtímaleigu fyrir eigendur sem vilja leigja út án þess að vera alltaf á vakt.

Stutt möguleikakönnun. Engin skuldbinding.

Dökkt timbursumarhús í íslensku landslagi, hugmyndamynd
Hugmyndamynd
ÞÍN EIGN · ÞINN TÍMI

Meira svigrúm
Minni dagleg umsýsla

Persónulegt utanumhald Skýr verkaskipting Þín eign, þínar ákvarðanir

ÞJÓNUSTAN

Allt þetta litla
Á einum stað

Bókanir, skilaboð og undirbúningur milli gesta taka tíma. Gistiumsjón heldur utan um þessa þræði í samræmi við það sem við ákveðum saman.

01

Skráning og verðstýring

Framsetning eignar, utanumhald auglýsinga og verðstýring með hliðsjón af tímabilum og eftirspurn.

02

Bókanir og gestasamskipti

Utanumhald bókana, svör við spurningum og skýrar upplýsingar fyrir komu og meðan á dvöl stendur.

03

Þrif og undirbúningur

Samræming þrifa og undirbúnings milli gesta. Verkaskipting og kostnaður eru ákveðin í upphafi.

04

Daglegt utanumhald

Yfirsýn yfir dagatalið og eftirfylgni með því sem kemur upp. Stærri mál eru borin undir þig.

Skýrt frá fyrsta degi. Umfang þjónustu, gjöld og ábyrgð beggja aðila eru ákveðin áður en samstarf hefst.

SAMSTARFIÐ

Þú átt eignina,
við sjáum um utanumhaldið

Gott samstarf byrjar á samtali, raunhæfum væntingum og skýru samkomulagi.

Tökum fyrsta skrefið
Með eignina þína
og gestina í huga.
  1. 01

    Við kynnumst eigninni

    Við förum yfir staðsetningu, ástand, þín markmið og hvaða tímabil hentar til útleigu. Skoðum líka leyfi og aðrar forsendur.

  2. 02

    Setjum skýran ramma

    Þjónustugjald, kostnaður, verkaskipting og þín eigin notkun eru ákveðin í samningi áður en hafist er handa.

  3. 03

    Daglega umsjónin fer af stað

    Við undirbúum útleiguna og tökum við umsömdum verkefnum. Þú hefur yfirsýn og kemur að stærri ákvörðunum.

BYRJUM Á SAMTALI

Hentar Gistiumsjón
þinni eign?

Segðu okkur frá eigninni og því sem þú ert að leita að. Við skoðum möguleikana saman.

3 einföld skrefEngin skuldbinding
  1. 1Eignin þín
  2. 2Útleigan og þjónustan
  3. 3Tengiliðir og fyrirspurn

Þú færð mat á næstu skrefum áður en þú sendir fyrirspurnina. Endanlegt mat á þjónustu fer meðal annars eftir staðsetningu og aðstöðu.

SKREF 1 AF 3

Byrjum á eigninni

Upplýsingarnar fylgja með alla leið. Reitir merktir * eru nauðsynlegir.

Hvers konar eign áttu? *
Ekkert er sent í þessu skrefi.
Hvernig eru upplýsingarnar notaðar?

Upplýsingar um eignina, svörin þín og tengiliðaupplýsingar eru vistuð saman þegar þú sendir fyrirspurnina. Ekkert úr forminu er sent áður. Gögnin eru notuð til að meta fyrirspurnina og hafa samband við þig, ekki til sjálfvirkrar markaðspóstsendingar. Þú getur óskað eftir aðgangi, leiðréttingu eða eyðingu með nýrri fyrirspurn hér. Skráðu ekki viðkvæmar persónuupplýsingar.

GOTT AÐ VITA

Nokkrar góðar
spurningar

Skýrar forsendur gera
samstarfið einfaldara.

Hvað kostar þjónustan?

Þjónustugjald og umfang ráðast af eigninni og samkomulagi. Við förum yfir gjaldið, þrif, gjöld bókunarvefja og annan rekstrarkostnað áður en samstarf hefst. Fyrirspurn felur ekki í sér skuldbindingu.

Hvaða eignir og svæði koma til greina?

Við skoðum hverja eign fyrir sig. Staðsetning, aðgengi og möguleikar á þrifum og þjónustu á svæðinu ráða því hvort við getum tekið að okkur umsjónina. Skráning svæðis í matinu er ekki staðfesting á þjónustuframboði þar.

Get ég áfram notað eignina sjálf/ur?

Já, eigin notkun er hluti af samtalinu. Við samræmum útleigutímabil og frátekna daga áður en opnað er fyrir bókanir, með hliðsjón af þegar staðfestum bókunum.

Hvað með leyfi og tryggingar?

Áður en útleiga hefst þarf að staðfesta hvaða leyfi, skráningar, tryggingar og önnur skilyrði eiga við um eignina. Ábyrgð og verkaskipting eru skýrð í samningi. Möguleikakönnunin á síðunni er ekki staðfesting á því að heimilt sé að leigja eign út.

Er ákveðnum leigutekjum lofað?

Nei. Tekjur ráðast meðal annars af staðsetningu, ástandi, framboði, verðlagningu og eftirspurn. Við skoðum forsendurnar með þér en ábyrgjumst hvorki nýtingu né ákveðnar tekjur.